20 börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna

31. fyrsta úthlutunin úr ferðasjóði Vildarbarna Icelandair fór fram um helgina.

Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutunina. Mynd: Icelandair

20 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair um helgina. Alls hafa 645 fjölskylda notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 15 árum og úthlutunin var sú 31. í röðinni samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að starfsemi Vildarbarna Icelandair byggi á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.

„Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir,“ segir í tilkynningunni.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur – flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa rúmlega 3100 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.