„Það kemur fréttatilkynning á mánudaginn,“ sagði Andri Már Ingólfsson í svari við fyrirspurn sem Túrista sendi honum í morgun. Þar var beðið um skýringar á því að upplýsingum um eignarhald á ferðaskrifstofum hans á hinum Norðurlöndunum hefði verið breytt. Klukkustund eftir að fyrrnefnt svar barst frá Andra þá birti Túristi frétt sína um málið. Í millitíðinni hafði hins vegar almannatengill Andra komið fréttatilkynningu á fjölmiðla, þó ekki til Túrista, þar sem sagt var frá því að Travelco, nýtt eignarhaldsfélag, hefði keypt allar ferðaskrifstofur Primera Travel Group. Andri sendi sjálfur tilkynninguna á Túrista nokkru síðar en þá höfðu margir af stærstu netmiðlum landsins gert henni skil.
Svarið við spurningunni sem Túristi bar upp í morgun var þá að allur rekstur Primera Travel Group, sem er skráð á Íslandi og er í eigu Andra, hefur verið fluttur í danska dótturfélagið Primera Travel í Danmörku og það fyrirtæki endurnefnt Travelco Nordic. „Öll félögin eru færð undir það félag til að einfalda félagið og styrkja eigið fé þess eftir þessi miklu áföll,“ sagði í tilkynningunni. Var þar vísað til þess að í kjölfar gjaldþrots Primera Air hefðu ferðaskrifstofur samstæðunnar tapað háum fjárhæðum vegna fyrirframgreiddra flugferða og kaupa á nýjum flugsætum fyrir viðskiptavini sína.
Í tilkynningunni segir líka að hið nýja félag hafi tekið yfir skuldir Primera Travel Group við Arion banka. Í kjölfarið spurði Túristi hvað yrði um Primera Travel Group en svar við þeirri spurningu hefur ekki borist. Þess má geta að samkvæmt ársreikningi þessa fyrrum móðurfélags ferðaskrifstofanna og flugfélagsins þá tapaði það rúmum 700 milljónum í fyrra en hátt í 2 milljörðum í hittifyrra.
Sem fyrr segir þá kemur fram í tilkynningunni, sem Andri sendi út í flýti í dag, að nýja móðurfélagið myndi taka yfir skuldir við Arion banka. Bankinn hefur engu að síður nú þegar tapað töluverðum upphæðum á viðskiptum sínum við Primera Travel Group því daginn sem Primera air varð gjaldþrota sendi bankinn út tilkynningu um tap upp á allt að nærri 2 milljarða vegna viðskiptavinar. Þó nafn Primera air hafi þar ekki komið fram er enginn vafi á að þarna var átt við flugfélagið. Og samkvæmt heimildum Túrista þá hefur Arion banki nú fengið allsherjarveð í eignum Primera Travel Group, það er húseign Heimsferða, vörumerkjum Heimsferða og Terra Nova og lénum ferðaskrifstofanna. Eru veðin upp á annars vegar 190 milljónir danskra króna (um 3,4 milljarða kr.) og hins vegar 11 milljónir evra (1,5 milljarður). Samanlagt veð upp á rétt um 5 milljarða króna.
Þess má geta í lokin að ennþá hefur Túristi ekki fengið svar afhverju ábyrgð upp á 1,7 milljarð króna hvílir ekki lengur á Heimsferðum.