Þeir farþegar vilja fá sér að borða fyrir flugtak hafa nú fleiri valkosti en áður því í vikunni opnaði veitingastaðurinn Hjá Höllu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar er boðið upp á eldbakaðar súrdeigspítsur, ferskan fisk frá Grindavík, fersk salöt sem og úrval rétta til að taka með sér í flug. Búið er að koma fyrir stórum gaseldofni þar sem pítsurnar eru bakaðar við háan hita á aðeins 90 sekúndum. Þeir farþegar sem eru hvað mest að flýta sér geta gripið með sér tilbúnar pítsusneiðar samkvæmt því sem segir í tilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram að Hjá Höllu hafi verið með hagstæðasta tilboðið í samkeppni um útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu sem fram fór síðastliðið vor. Veitingastaðurinn er rekinn af Höllu Maríu Svansdóttur sem hefur rekið veitingastað undir sama merki í Grindavík og gerður var 4 ára samningur um reksturinn í Leifsstöð..
„Við erum mjög spennt að hefja nú rekstur á staðnum en opnunin er búin að vera í undirbúningi í sumar, allt frá því að samkeppninni lauk. Það er búið að vera mikil áskorun að setja upp stað sem þennan í flugstöðinni enda fjölmörg atriði sem þarf að hafa í huga í slíku verkefni með allan þann fjölda farþega sem fer hér um á hverjum degi. Viðtökurnar hafa verið afar góðar hingað til en staðurinn var opnaður til prufu fyrir nokkru síðan. Við bjóðum alla þá sem huga á ferðalög úr landi velkoma til okkar og prófa það sem við höfum uppá að bjóða,“ segir Halla María Svansdóttir: