„Þetta er stærsta tæknibreyting í flugbransanum í tuttugu ár. Við getum flogið miklu lengra og miklu hagkvæmara. Það er forsenda þess að við getum gert þetta og við erum lánsöm að vera á réttum stað á réttum tíma.“ Þetta sagði Andri Már Ingólfsson, eigandi Primera air í viðtali við Morgunblaðið í lok ágúst. Þá hafði flugfélagið nýverið hafið áætlunarflug frá London og París til Norður-Ameríku.
Sömu viku og Moggaviðtalið birtist hóf Primera air sölu á Ameríkuflugi frá Berlín og Brussel. Í september var tilkynnt um samskonar ferðir frá Frankfurt og Madríd og var sala á sætum í þeir hafin. Stjórnendur félagsins viðruðu líka nýverið hugmyndir um innanlandsflug í Danmörku.
Þeir farþegar sem keyptu sér sæti á þessum nýju flugleiðum Primera air og þeim sem fyrir voru komast þó ekki í loftið því á morgun fer flugfélagið í greiðslustöðvun. Í yfirlýsingu sem stjórn þess sendi frá sér seinnipartinn í dag segir að ákvörðunin hafi verið tekin í ljósi þungbærra áfalla á síðasta ári. Félagið hafi misst flugvél úr flotanum vegna tæringar, sem hafi kostað það 1,5 milljarða króna, auk þess sem miklar seinkanir á afhendingu nýrra véla frá Airbus hafi valdið fjárhagslegu tjóni upp á 2 milljarða. Þar að auki hafi verið horft til „síhækkandi olíuverðs, lækkandi farmiðaverðs á öllum mörkuðum, sem og þess að lágmarka óþægindi viðskiptavina félagsins.“
Þrátt fyrir þessi áföll og versnandi aðstæður þá var engan bilbug að finna í forsvarsfólki Primera air og umsvifin voru aukin töluvert síðustu vikur. Á bak við tjöldin var staðan þó erfið því líkt og Túristi greindi frá í gær þá var flugfélagið metið verðlaust í bókum PA Holding sem fór með 84% hlut Andra Más í Primera air. Túristi fékk þó ekki svör við spurningum um hver ástæðan væri fyrir þessu verðmati á flugfélagi sem skilað hafði hagnaði í fyrra, þó aðeins bókhaldslegum, og væri endurtekið að tilkynna um kaup á flugvélum og nýja áfangastaði.