Samfélagsmiðlar

Primera air skilur eftir sig tugmilljóna skuld á Keflavíkurflugvelli

Ógreidd lendinga- og farþegagjöld flugfélags Andra Más Ingólfssonar nema að öllum líkum háum upphæðum. Félagið var þó umsvifalítið í millilandaflugi héðan.

Þó Primera air hafi aðeins staðið undir um einni af hverjum hundrað brottförum frá Keflavíkurflugvelli þá voru ferðirnar félagsins hingað engu að síður ein til tvær á dag yfir sumarmánuðina. Í nýliðnum september lentu Boeing þotur félagsins 33 sinnum á Keflavíkurflugvelli og í ágúst voru lendingarnar 45 talsins samkvæmt daglegum talningum Túrista á flugumferð.

Nú er Primera air komið í greiðslustöðvun og þotur félagsins komnar á jörðina. Fjöldi farþega félagsins hefur síðustu sólarhringa þurft að koma sér heim á eigin kostnað og þeir sem eiga ónýtta miða þurfa að sækja um endurgreiðslur í gegnum banka- og greiðslukortafyrirtæki. Þrot félagsins veldur því mörgum einstaklingum og fyrirtækjum tjóni og gera má ráð fyrir að ógreidd skuld Primera air við Keflavíkurflugvöll nemi mörgum tugum milljóna.

Lendingagjöld flugfélagsins fyrir september námu til að mynda um 4 milljónum samkvæmt útreikningum Túrista og farþegagjöldin hafa verið um 17 milljónir ef reiknað er með eðlilegri sætanýtingu yfir sumarmánuðina. Samtals rúm 21 milljón og þar sem reikningurinn fyrir síðasta mánuð hefur líklega fyrst verið gefin út daginn sem Primera air fór í þrot þá er hann næsta víst ógreiddur. Greiðslufresturinn hjá Isavia mun að jafnaði vera um 2 mánuðir og reikningur fyrir ágúst því sennilega líka ógreiddur í bókum Primera air. Þann mánuð voru umsvif Primera air nokkru meiri og skuldin fyrir nærri 30 milljónir miðað við fyrrnefndar forsendur.

Ekki fást upplýsingar hjá Isavia um hver skuld Primera air er við Keflavíkurflugvöll en miðað við tölunar hér að ofan þá hafa vanskilin numið að minnsta kosti 50 milljónum króna ef reikningar fyrir september og ágúst hafi verið ógreiddir. Ef skuldahalinn nær aftur til júnímánaðar þá er upphæðin um tvöfalt hærri.

Sem fyrr segir þá stóð flugfélag Andra Más Ingólfssonar undir sáralitlum hluta af flugumferðinni til og frá Keflavíkurflugvelli. Til samanburðar þá má gera ráð fyrir að reikningurinn sem Isavia sendi Icelandair fyrir september mánuð hafi numið á bilinu 550 til 650 milljónum króna. WOW air hefur miðað við sömu forsendur fengið reikning upp á 450 til 550 milljónir króna. Hafa ber í huga að útreikningar á gjöldum þessara tveggja flugfélaga er flóknari þar sem hlutfall skiptifarþega hefur mikið að segja og eins sú staðreynd að flugfélögin notast við ólíkar gerðir flugvéla.

Leiðrétt: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var því haldið fram að farþegagjöldin væru opinber gjöld. Hið rétta er svo er ekki. Þetta eru, líkt og lendingagjöldin, tekjur flugvallarins, þ.e. Isavia.

 

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …