Samfélagsmiðlar

Biður um álit ráðherra á skuldum flugfélaga við Isavia

Er ásættanlegt að flugrekendur safni skuldum á Keflavíkurflugvelli? Um þetta og fleira spyr Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður, Viðreisnar. Hann var ekki sáttur við svör ráðherra við fyrri fyrirspurn sinni og hefur því lagt fram nýja á Alþingi.

Jón Steindór Valdimarsson gerir nú aðra tilraun til fá upplýsingar frá samgönguráðherra um greiðslukjör flugfélaga hjá Isavia.

Það má leiða að því líkum að Primera air, flugfélag Andra Más Ingólfssonar, hafi skuldað Isavia tugi milljóna í farþega- og lendingagjöld þegar flugfélagið varð gjaldþrota í byrjun síðasta mánaðar. Þá tókst stjórnendur Isavia ekki að kyrrsetja flugvél á vegum Primera air til að fá upp í skuldina líkt og gert var þegar Airberlin fór í þrot. Og tjón hins opinbera fyrirtækis yrði margfalt hærra ef annað hvort Icelandair eða WOW air færu í þrot án þess að greiða reikninga síðustu mánaða við Isavia. Farþega- og lendingagjöld þessara félaga eru að lágmarki 500 til 600 milljónir á mánuði.

Ennþá hefur ekki fengist staðfest hvort frétt Morgunblaðsins í haust, um nærri 2 milljarða skuldahala WOW air á Keflavíkurflugvelli, hafi verið nærri sannleikanum eða ekki. Og nýleg svör samgönguráðherra við fyrirspurn Jón Steindórs Valdimarssonar, þingmanns Viðreisnar, um skuldastöðu flugrekenda við Isavia, gáfu engin svör þar sem stjórnendur Isavia telja ekki heimilt að veita þessar upplýsingar. Þeir telja sig heldur ekki geta bannað flugrekendum að nota flugvöllinn þótt viðkomandi sé í skuld við Isavia.

Jón Steindór hefur nú lagt fram nýja fyrirspurn á Alþingi um þessi mál og spyr ráðherra hvort hann telji það ásættanlegt að Isavia veiti einstökum flugfélögum greiðslufrest án trygginga á háum fjárhæðum sem eru í vanskilum. Ráðherra er einnig beðin um að veita þinginu upplýsingar um skuldir flugfélaga um síðustu mánaðamót og hversu há upphæð tapast á hverju ári vegna ógreiddra gjalda.

Hér er fyrirspurn Jóns Steindórs í heild sinni:

1. Hverjar voru heildartekjur ISAVIA og/eða ríkisins vegna lendingargjalda, farþegagjalda, stæðisgjalda, flugverndargjalda, flugleiðsögugjalda og annarra gjalda sem við kunna að eiga á Keflavíkurflugvelli árin 2013–2018, sundurliðað eftir árum, og:
a. hversu stór fjárhæð var komin fram yfir gjalddaga í lok hvers árs,
b. hve há fjárhæð tapaðist á hverju ári vegna ógreiddra gjalda,
c. hve háir dráttarvextir voru reiknaðir af framangreindum gjöldum sem komin voru í vanskil ár hvert,
d. hve háar eru skuldir flugfélaga sem komnar eru fram yfir gjalddaga og/eða eindaga 1. nóvember 2018?
2. Getur ISAVIA beitt stöðvunarheimild á vélar sem eru í leigu flugfélags fyrir skuldum félagsins sem ekki tengjast þeirri flugvél?
3.  Telur ráðherra það ásættanlegt að ISAVIA veiti einstökum flugfélögum greiðslufrest án trygginga á háum fjárhæðum sem eru í vanskilum? 

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …