Samfélagsmiðlar

Níu milljónasti farþeginn fór um Keflavíkurflugvöll

Par frá Hong Kong og Taívan átti leið um Keflavíkurflugvöll á leið sinni frá Bandaríkjunum til Danmerkur í gær og varð um leið 9 milljónasti farþeginn í flugstöðinni.

Grét­ar Már Garðars­son, viðskipta­stjóri flug­fé­laga á Kefla­vík­ur­flug­velli, Gunn­hild­ur Erla Vil­bergs­dótt­ir, deild­ar­stjóri viðskipta á Kefla­vík­ur­flug­velli, Oli­ve Ho, Chun Liang Li, Ólöf S. Lár­us­dótt­ir, verk­efna­stjóri viðskipta­deild­ar Kefla­vík­ur­flug­vall­ar, og Gunn­ar K. Sig­urðsson, markaðsstjóri Isa­via.

Starfsfólk Isavia fagnaði í gær níu milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár. Hann kom til landsins frá Pittsburg í Bandaríkjunum með flugvél Wow Air. Þau heppnu eru Olive Ho frá Hong Kong og Chun Liang Li frá Taívan. Þau millilentu á Keflavíkurflugvelli um morguninn en héldu síðan áfram för sinni til Kaupmannahafnar.

Í tilkynningu frá Isavia segir að hin heppnu voru leyst út með gjöfum frá Bláa lóninu og veitingastaðnum Hjá Höllu. „Þau voru afar ánægð með móttökurnar við komuna til landsins, sem kom þeim eðlilega mjög á óvart. Oilve Ho segir að hún hafi einu sinni áður komið til Íslands en muni sannarlega gera sér ferð aftur hingað til lands.“

Níu milljón farþegar hafa nú það sem af er árinu farið í gegnum Keflavíkurflugvöll og er það í fyrsta sinn sem því takmarki er náð. Þar er samtals um að ræða komu-, brottfarar- og skiptifarþega.

Nýtt efni
Veitingaþjónusta

Íslenskt atvinnulíf er mjög háð aðfluttu vinnuafli. Það á ekki síst við um ferðaþjónustuna. Umsvif hennar væru mun minni ef ekki kæmu hingað útlendingar þúsundum saman til starfa á ári hverju. Samkvæmt Hagstofunni voru 35.233 starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi í júní 2023. Þar af voru um 15.500 útlendingar.  Heildartalan yfir þá sem …

Áætlunarflug milli Akureyrar og London hófst í lok október og síðan þá hafa þotur Easyjet flogið þessa leið tvisvar í viku en engin talning fer fram á fjölda ferðamanna á Akureyrarflugvelli öfugt við það sem tíðkast á Keflavíkurflugvelli. Til að meta fjölda breskra ferðamanna í beina fluginu þarf því að styðjast við gistináttatölur Hagstofunnar en …

Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur. Það eru því …

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …