Samfélagsmiðlar

Nýr framkvæmdastjóri hjá Isavia

Síðustu mánuði hefur staða yfirmanns flugvallarsviðs Isavia verið laus en við henni tekur Sigrún Björk Jakobsdóttir sem var um tíma bæjarstjóri á Akureyri.

akureyri egilsstadir

Flugstöðvarnar á Akureyri og Egilsstöðum.

Sigrún Björk Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia og hefur hún störf 4. desember næstkomandi. Í starfinu felst yfirumsjón með rekstri og þróun flugvallakerfis utan Keflavíkurflugvallar. Kerfið samanstendur af tólf áætlunarflugvöllum og á fjórða tug annarra flugvalla og lendingarstaða samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Isavia.

Þar kemur fram að Sigrún Björk hafi víðtæka reynslu af rekstri og þekki vel til ferðaþjónustu og sveitarstjórnarmála. Hún varð fyrst kvenna bæjarstjóri á Akureyri á árunum 2007 til 2009. Sigrún Björk var hótelstjóri á Icelandair Hótel Akureyri 2011 til 2017 og síðan framkvæmdastjóri Sinnum heimaþjónustu. Hún hefur jafnframt setið í stjórnum Samtaka ferðaþjónustunnar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsnets, þar sem hún hefur verið stjórnarformaður.

„Innanlandsflugvellir á Íslandi eru gríðarlega mikilvægir innviðir fyrir samfélagið allt. Rekstur þeirra skiptir afskaplega miklu fyrir fólk og ferðaþjónustu,“ segir Sigrún Björk. „Ég þekki vel í gegnum mín fyrri störf í sveitarstjórnarmálum og ferðaþjónustu að mörg og spennandi tækifæri liggja í innanlandsflugvallakerfinu sem hægt er að nýta mun betur. Þetta er krefjandi verkefni sem ég tek að mér og þakka ég það góða traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ er haft eftir Sigrúnu í tilkynningunni.

„Við hjá Isavia hlökkum til að fá Sigrúnu Björk til starfa,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Þekking hennar og reynsla af rekstri og trúnaðarstörfum hvers konar mun koma félaginu til góða. Sigrún Björk hefur meðal annars unnið að markaðssetningu Akureyrarflugvallar fyrir Markaðsstofu Norðurlands og þekkir hún því vel til verkefna á þessu sviði.“

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …