Gamlársdagur er á mánudegi og þar með er hægt að fara í fjögurra nótta ferðalag í kringum áramótin án þess þó að ganga á orlofið ef flogið er út um þarnæstu helgi og heim á nýársdag. Og þó nú séu innan við 2 vikur í brottför þá þarf farmiðinn ekki að kosta svo mikið ef stefnan er sett á evrópska höfuðborg eins og þessi dæmi sýna.
Amsterdam
Með Icelandair til Hollands á laugardagsmorgni og heim á nýársdag fyrir 25.774 kr.
Búdapest
Flogið með Wizz Air til Ungverjalands þann 29. desember og heim eldsnemma á nýársdagsmorgun fyrir 18.511 kr.
Edinborg
Þota easyJet leggur í hann sunnudaginn 30. desember og svo haldið til Íslands um kaffileytið á nýársdag. Báðar leiðir 28.599 kr.
London
Út á laugardeginum 29. desember með easyJet og heim á nýársdag með WOW fyrir 17.686 kr.
Berlín
Með Icelandair eða WOW til þýsku höfuðborgarinnar á laugardeginum og heim á nýársdag og farið með báður félögum um 29 þúsund kr.
Dublin
Haldið til írsku borgarinnar með WOW air að morgni laugardags og heim á nýársdag fyrir 27.251 kr.
Ef þig langar heldur eitthvert annað um áramótin þá sérðu hér til hvaða borga verður flogið til í vetur frá Keflavíkurflugvelli. Gistingin gæti hins vegar verið dýrari kantinum en nota má þessa leitarvél til að gera einfaldan samanburð.