Guðjón Arngrímsson sem verið hefur talsmaður Icelandair alla þessa öld sagði starfi sínu lausu í haust og lætur nú af störfum. Við starfi hans tekur Ásdís Ýr Pétursdóttir.
Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að Ásdís hafi yfir 15 ára reynslu á sviði samskipta- og kynningarmála. Lengst af fyrir Bakkavör Group og Actavis en undanfarin misseri hefur hún sinnt ráðgjöf. Ásdís er með BA próf í almannatengslum.