Samfélagsmiðlar

Bretlandsflugið til Akureyrar hafið á ný

Annan veturinn í röð mun breska ferðaskrifstofan Super Break bjóða upp á Íslandsferðir með beinu flugi til Akureyrar. Nú geta Norðlendingar líka nýtt sér samöngurnar.

Frá komunni til Akureyrar í dag.

Í dag lentu fyrstu ferðamenn vetrarins á Akureyrarflugvelli, sem koma til Norðurlands á vegum bresku ferðaskrifstofunnar Super Break. Flugferðirnar verða alls 29 í vetur og í hverri ferð verða sæti fyrir 200 manns. „Þessi innspýting er því afar kærkomin fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi eins og sást síðasta vetur,“ segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Það er flugfélagið Titan Airways sem sér um flugið fyrir Super Break í vetur og lendingin á Akureyrarvelli í dag var þeirra fyrsta. Til verksins var notuð ein af stærri vélum félagsins, Airbus A321, og gekk lendingin vel.

„Við erum hæstánægð með að vera komin aftur til Norðurlands fyrir fyrsta flug vetrarins. Í dag var flogið frá Exeter, einum af þeim 18 flugvöllum sem flogið verður frá í þessum 29 ferðum. Þeirra á meðal eru líka flugvellirnir í Inverness, Isle of Man, Jersey, Derry, Newquay og London Southend en frá þessum völlum förum við í fyrsta sinn. Við höfum unnið náið með Markaðsstofu Norðurlands, samstarfsfyrirtækjum okkar á Norðurlandi, Isavia og Titan Airways til að tryggja að við séum sem best undirbúin fyrir komu 4500 ferðamanna á okkar vegum frá desember og fram í mars. Ég er viss um að þeir hlakki líka til að koma hingað og njóta hlýlegra móttaka heimafólks, eins og við höfum fengið að kynnast síðustu 18 mánuði,“ segir Chris Hagan, hjá Super Break, í tilkynningu.

„Við erum líka ánægð með að geta boðið Norðlendingum flugsæti til Bretlands, sem skapar í fyrsta sinni tækifæri á beinum tengingum við hin ýmsu héruð Bretlands sem ekki hafa áður verið í boði. Verðin eru frá aðeins 99 pundum og við munum auglýsa nánari upplýsingar í Dagskránni í hverri viku,“ segir Hagan.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …