Samfélagsmiðlar

Ferðamálastofa verðlaunar

Bjarnarfoss í Staðarsveit hlýtur umhverfisverðlaun ársins.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, og Margrét Björk Björnsdóttir, veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd Snæfellsbæjar og eru hér með Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálasjóra.

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og að þessu sinni var það verkefnið „Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið“ hlaut verðlaunin. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að þetta sé í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt verkefni sem hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða á tímabilinu 2014-2016. „Verkið var unnið á árunum 2015 – 2016 og er gott dæmi um hvernig heimafólk og sveitarfélag, með liðsinni Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, hafa unnið faglega að uppbyggingu áningarstaðar þar sem allir geta notið fallegrar náttúru. Staðurinn er nú aðgengilegur allt árið,“ segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að Bjarnarfoss sé tignarlegur foss sem fellur fram af hamrabrúninni upp af Búðum á Snæfellsnesi. „Fossinn, ásamt stuðlabergshömrum beggja vegna og gróskumiklum brekkum neðan þeirra, er á náttúruverndarskrá Vesturlands. Fossinn blasir við vegfarendum sem fara um þjóðveginn á sunnanverðu Snæfellsnesi og því ekki að undra að hann hafi dregið til sín ferðafólk í auknu mæli.“

Snæfellsbær sótti um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og fékk 10 milljóna króna styrk til að gera göngustíg, göngubrú, áningarstað, bílastæði og skilti. Áður hafði sveitarfélagið fengið tæpa hálfa milljón til hönnunarvinnu. Markmið styrkveitinganna var að vernda viðkvæma náttúru og bæta aðgengi ferðamanna að fossinum. „Göngustígurinn er lagður þannig að hann liðast eftir landinu. Notast var við svokallaðar eco-grindur sem eru lagðar í yfirborð stígsins og þær síðan fylltar með ofaníburði, þannig að auðveldara væri að fara um stíginn t.d. á hjólastól eða með barnakerru. Göngubrúin yfir gilið neðan við fossinn er gerð úr viðardrumbum og fellur vel inn í landslagið. Áningarstaðirnir eru síðan teknir út úr stígnum eftir legu landsins en þeir eru lagðir með náttúruhellum. Þar er einnig að finna áningarborð. Gott bílastæði er við upphaf stígsins og gamla brúin við veginn var endurgerð samkvæmt upprunalegum teikningum frá árinu 1949.“

 

 

Nýtt efni

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …