Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og að þessu sinni var það verkefnið „Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið“ hlaut verðlaunin. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að þetta sé í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt verkefni sem hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða á tímabilinu 2014-2016. „Verkið var unnið á árunum 2015 – 2016 og er gott dæmi um hvernig heimafólk og sveitarfélag, með liðsinni Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, hafa unnið faglega að uppbyggingu áningarstaðar þar sem allir geta notið fallegrar náttúru. Staðurinn er nú aðgengilegur allt árið,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur fram að Bjarnarfoss sé tignarlegur foss sem fellur fram af hamrabrúninni upp af Búðum á Snæfellsnesi. „Fossinn, ásamt stuðlabergshömrum beggja vegna og gróskumiklum brekkum neðan þeirra, er á náttúruverndarskrá Vesturlands. Fossinn blasir við vegfarendum sem fara um þjóðveginn á sunnanverðu Snæfellsnesi og því ekki að undra að hann hafi dregið til sín ferðafólk í auknu mæli.“
Snæfellsbær sótti um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og fékk 10 milljóna króna styrk til að gera göngustíg, göngubrú, áningarstað, bílastæði og skilti. Áður hafði sveitarfélagið fengið tæpa hálfa milljón til hönnunarvinnu. Markmið styrkveitinganna var að vernda viðkvæma náttúru og bæta aðgengi ferðamanna að fossinum. „Göngustígurinn er lagður þannig að hann liðast eftir landinu. Notast var við svokallaðar eco-grindur sem eru lagðar í yfirborð stígsins og þær síðan fylltar með ofaníburði, þannig að auðveldara væri að fara um stíginn t.d. á hjólastól eða með barnakerru. Göngubrúin yfir gilið neðan við fossinn er gerð úr viðardrumbum og fellur vel inn í landslagið. Áningarstaðirnir eru síðan teknir út úr stígnum eftir legu landsins en þeir eru lagðir með náttúruhellum. Þar er einnig að finna áningarborð. Gott bílastæði er við upphaf stígsins og gamla brúin við veginn var endurgerð samkvæmt upprunalegum teikningum frá árinu 1949.“