Ferðaþjónustan á Hveravöllum er opin allan ársins hring og samkvæmt talningu Ferðamálastofu komu um 80 þúsund manns til Hveravalla árið 2016. Um 10 þúsund manns gista þar árlega í skálum, tjöldum og húsbílum. Hveravallafélagið hefur starfað áratugum saman á Hveravöllum og hafa eigendur þess varið um 100 milljónum króna í endurbætur húsa og búnaðar ásamt uppbyggingu innviða á borð við vatnsveitu og fráveitu í samstarfi við Umhverfisstofnun og fleiri aðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu þar sem greint er frá því að starfsemin er nú til sölu.
Það er ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line sem er stærsti eigandi Hveravallafélagsins en aðrir hluthafar eru Húnavatnshreppur og Björn Þór Kristjánsson. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að fara út úr ferðaþjónusturekstrinum og eigendur Gray Line hafa ákveðið að einbeita kröftum sínum að rekstri eigin félags samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu við Skíðaskálann í Hveradölum.
„Ferðaþjónustan á Hveravöllum skapar mikil tækifæri en er um leið krefjandi og kallar á óskipta athygli rekstraraðila. Framundan eru miklir möguleikar í uppbyggingu og vöruþróun á svæðinu. Við teljum því mikilvægt að starfsemin komist í hendur aðila sem geta sinnt henni nú og til framtíðar. Með því að láta Hveravallafélagið af hendi getum við betur einbeitt okkur að uppbyggingaráformum í Hveradölum,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveravallafélagsins.
Í tilkynningunni segir jafnframt að fjölgun ferðamanna kalli á bætta aðstöðu á Hveravöllum og fyrir liggi tillaga að byggingu nýrrar hálendismiðstöðvar í samræmi við landsskipulag. Bygging hálendismiðstöðvarinnar er fyrirhuguð utan friðlýsta hverasvæðisins til að stuðla að vernd þess og sjálfbærri þróun.