Samtals fóru fóru rúmlega 2,3 milljónir erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll í fyrra sem er viðbót um rúmlega 100 þúsund farþega frá því árið 2017. Hlutfallslega nemur aukningin um 5 af hundraði samkvæmt því sem fram kemur í tölum Ferðamálastofu sem birtar voru í gær. Þær byggja á talningu Isavia við vopnaleitina í Leifsstöð og þar með eru allir farþegar með erlend vegabréf taldir. Líka þeir sem aðeins hafa millilent hér en þurft að innrita sig í tengiflug, svokallaðir sjálftengifarþegar, en einnig útlendingar búsettir hér á landi.
Skekkjan sem þessir hópar valda í talningunni var fyrst könnuð í hittifyrra eftir að Túristi vakti á henni athygli. Í ljós kom að skekkjan var allt að 14 prósent í þeim mælingum sem Isavia gerði í kjölfarið. Engar þess háttar kannanir hafa verið birtar síðustu misseri en samkvæmt landamærakönnun Ferðamálastofu þá var hlutfall farþega í Leifsstöð, sem gistir ekki á landinu, á bilinu 1,1 til 4 prósent eftir mánuðum í fyrra. Vægi erlenda ríkisborgara, sem búsettir eru á Íslandi, liggur þó ekki fyrir. Það hlutfall var allt að 4,7 prósent í könnunum Isavia í fyrra.
Það eru þó vísbendingar um að útlendingar búsettir á Íslandi hafi ferðast sífellt meira líkt og Íslendingar sjálfir gera. Þannig eru Pólverjar núna sjötta fjölmennasta þjóðin í hópi ferðamanna hér á landi samkvæmt talningunni. Pólverjar hafa ekki áður verið svona ofarlega á blaði eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Hér á landi búa um 17 þúsund pólskir ríkisborgarar og hefur þeim fjölgað hratt í takt við uppgang ferðaþjónustunnar. Þegar þessir íbúar landsins ferðast frá Keflavíkurflugvelli eru þeir taldir sem erlendir ferðamenn.
Á sama tíma hefur flugumferð milli Póllands og Íslands stóraukist með tilkomu Wizz air sem nú flýgur hingað frá 5 pólskum borgum. Sú mikla breyting hefur vafalítið orðið til þess að fleiri Pólverjar heimsækja landið sem ferðamenn. Pólskum hótelnóttum hefur þannig fjölgað síðustu ár en þær eru engu að síður mjög fáar á hvern Pólverja sem hingað kemur eða um 0,2. Pólverjar eru því í 23. sæti þegar litið er til þeirra þjóða sem bóka hér flestar hótelnætur. Að jafnaði kaupa hinar þjóðirnar á topp tíu listanum að jafnaði 1,9 hótelnótt á hvern ferðamann. Pólsku ferðamennirnir gætu sótt í heimagistingu í meira mæli en aðrar þjóðir.
Kanadamenn hafa líka nokkra sérstöðu á listanum yfir hótelnætur á hvern ferðamenn. Bóka þeir að jafnaði tæpa eina nótt á mann en samkvæmt fyrrnefndri landamærakönnun Ferðamálastofu, sem framkvæmd er á Keflavíkurflugvelli, þá segjast 4,3 prósent svarenda frá Norður-Ameríku að þeir hafi ekki gist hér á landi. Það er hærra hlutfall en þekkist frá öðrum heimsálfum og ein skýring á því kann að vera sú staðreynd að framboð á Íslandsflugi er óvenju mikið frá Kanada. Alla vega í samanburði við fjölda ferða til flestra annarra Evrópuríkja og Leifsstöð er því heppileg skiptistöð fyrir íbúa Kanada á leið til og frá Evrópu.