Í nýliðnum desember fóru 606.618 farþegar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem er 558 farþegum færra en á sama tíma í fyrra. Hlutfallslega nemur breytingin aðeins -0,09 prósentum. Þetta er í fyrsta skipti síðan vorið 2010 sem farþegum á Keflavíkurflugvelli fækkar á milli ára. Það var samdráttur í hópi skiptifarþegar sem olli þessum tímamótum því komu- og brottfararfarþegum fjölgaði þónokkuð frá því í desember í fyrra.
Skiptifarþegarnir eru engu að síður fjölmennasti hópurinn í flugstöðinni og var vægi þeirra í desember um 35 prósent. Allt árið 2018 var hlutfall þeirra hins vegar 39,5 prósent. Hafa ber í huga að skiptifarþegar eru tvítaldir.
Í heildina fóru 9,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll í fyrra sem er aukning um eina milljón farþega frá metárinu í fyrra.