Á fimmtudaginn halda markaðsstofur landshlutanna sitt árlega Mannamót en það er heiti kaupstefna fyrir samstarfsfyrirtæki ferðaþjónustunnar út á landi. Viðburðurinn verður að þessu sinni haldinn í Kórnum í Kópavogi en síðustu fimm ár hefur flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli hýst viðburðinn. Eftirspurn ferðaþjónustufyrirtækja sem vilja vera með bás á sýningunni hefur aldrei eins mikil og fjöldi sýnenda hefur aldrei verið meiri en alls verða 270 fyrirtæki með bás samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu.
Þar segir jafnframt að Mannamót markaðsstofanna sé kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. „Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku,“ segir í tilkynningu.
Mannamót er haldið af Markaðsstofum landshlutanna í samstarfi við flugfélagið Erni og Isavia.