Í kringum höfuðborg Bandaríkjanna er að finna þrjár alþjóðlegar flughafnir og ein af þeim er Baltimore/Washington flugvöllur. Þangað flugu þotur Icelandair um langt árabil en í tengslum við endurskipulagningu félagsins í kringum íslenska efnahagshrunið voru áætlunarferðirnar til Baltimore lagðar niður. Vorið 2011 tók Icelandair upp þráðinn að nýju í Washington en þá með reglulegu flugi til Washington Dulles flugvallar. Ferðalagið þangað, frá miðbæ Washington, er álíka langt og til Baltimore flugvallar.
Stjórnendur WOW air völdu aftur á móti Baltimore sem sína heimahöfn á bandaríska höfuðborgarsvæðinu þegar félagið hóf Ameríkuflug sumarið 2015. Síðan þá hafa bæði flugfélögin aukið umsvif sín verulega í farþegaflugi til og frá Washington svæðinu, Icelandair frá Dulles og WOW frá Baltimore. Í ársbyrjun í fyrra boðaði Icelandair óvænt endurkomu sína til Baltimore. Jómfrúarferðin var farin í lok maí og hélt félagið úti ferðunum þangað fram á haustið samhliða fluginu til Dulles. Í heildina fjölgaði flugferðum Icelandair um nærri 10 af hundraði til Washington svæðisins síðastliðið sumar samkvæmt talningum Túrista.
Icelandair snýr hins vegar ekki aftur til Baltimore fyrir næstu sumarvertíð. Ástæðan er sú að afkoman af fluginu var ekki nógu góð samkvæmt svari félagsins við fyrirspurn Túrista.
Þessi ákvörðun þarf ekki að koma á óvart þegar rýnt er í tölur bandarískra flugmálayfirvalda. Þá kemur í ljós að frá júní og fram í september í fyrra þá fækkaði farþegum Icelandair, til og frá Washington svæðinu, um ríflega fjögur þúsund eða um 5 af hundraði. Þetta gerðist þrátt fyrir að Icelandair hafi flogið frá tveimur flugvöllum og samtals fjölgað ferðum um nærri níu af hundraði samkvæmt talningu Túrista.
Varlega áætlað má gera ráð fyrir að tekjutap Icelandair af þessum samdrætti í Washington nemi að minnsta kosti rúmlega eitt hundrað milljónum króna yfir þetta fjögurra mánaða tímabil. Það er þó erfitt að leggja nákvæmt mat á tekjumissinn þar sem leiðakerfi Icelandair byggir að miklu leyti á tengiflugi. Verðlagning á stökum fluglegg, í tengiflugi milli Bandaríkjanna og Evrópu, er til að mynda önnur en á áætlunarferð frá Íslandi til Washington.
Það voru hins vegar 43 prósent fleiri sem nýttu sér áætlunarferðir WOW í Baltimore á þessu fjögurra mánaða tímabili. Viðbótin er þó hlutfallslega minni en varð í fjölda flugferða því WOW bætti verulega í flugið til Baltimore í fyrra. Í stað einnar ferðar á dag voru brottfarirnar tvær suma daga og í heildina fjölgaði áætlunarferðum WOW til bandaríska flugvallarins um nærri sextíu af hundraði samkvæmt talningum Túrista.
Þess má geta að íslensk flugmálayfirvöld veita ekki upplýsingar um farþegafjölda í áætlunarflugi öfugt við það sem tíðkast í Bandaríkjunum. Túristi kærði þennan upplýsingaskort til úrskurðarnefndar upplýsingamála síðastliðið vor en niðurstaða hefur ekki ennþá fengist.
Baltimore/Washington var ekki eini áfangastaðurinn sem Icelandair elti WOW air til í fyrra. Félagið hóf líka samkeppni við keppinautinn í Dublin og San Francisco og Berlín stuttu áður. WOW air skoraði svo Icelandair á hólm í Vancouver og Orlando. Jómfrúarferðin til þeirrar fyrrnefndu verður þó aldrei farin og Orlandóflugið var skammlíft.