Samfélagsmiðlar

Ný staða á Húsavík

Christin Irma Schröder verður sú fyrsta til að veita Húsavíkurstofu forstöðu.

Christin Irma Schröder leiðir nú Húsavíkurstofu.

Húsavíkurstofa er samnefnari fyrirtækja í ferðaþjónustu bæjarins sem tók til starfa árið 2002 en fékk núverand heiti sitt árið 2010. Nú hefur Christin Irma Schröder verið ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu en um er að ræða nýja stöðu er er meðal annars fjármögnuð með rekstarstyrk frá Norðurþingi.

Christin er þrítug að aldri og hefur undanfarið ár starfað hjá PriceWaterhouse Coopers en var áður í starfi aðstoðarmanns framkvæmdastjóra hjá PCC Bakki Silicon. Hún er með MS próf í fjölþjóðasamskiptum en lauk þar áður BA prófi í evrópufræðum. Christin er þýsk en hefur verið búsett á Húsavík í nokkur ár samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu.

Húsavíkurstofa hefur í gegnum tíðina unnið ýmis verkefni og var á sínum tíma meðal annars rekstraraðili Mærudaga, upplýsingamiðstöðvarinnar á Húsavík sem og tjaldsvæðisins. Stjórn Húsavíkustofu sagði sig frá öllum rekstri árið 2016 og síðan þá hefur farið fram þarfagreining á verkefnum þeim sem slíkt félag ætti að standa undir.

„Á síðustu árum hefur ferðaþjónusta vaxið gríðarlega sem atvinnugrein á Íslandi og gæði aukist samhliða því. Dvalartími ferðamanna hefur hinsvegar styst og því minni prósenta ferðamanna sem sækir út á land. Samkeppni hefur aldrei verið meiri og hafa ýmis sveitarfélög í samstarfi við ferðaþjónustusamtök blásið til sóknar í áfangastaðamarkaðssetningu. Norðurþing bætist nú í hóp þeirra sveitarfélaga og mun samstarfið við Húsavíkurstofu meðal annars fela í sér samræmingu á upplýsingagjöf til ferðamanna og umsjón með markaðssetningu hafna Norðurþings með tilliti til skemmtiferðaskipa,“ segir í tilkynningu frá Húsavíkurstofu.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …