Húsavíkurstofa er samnefnari fyrirtækja í ferðaþjónustu bæjarins sem tók til starfa árið 2002 en fékk núverand heiti sitt árið 2010. Nú hefur Christin Irma Schröder verið ráðin forstöðumaður Húsavíkurstofu en um er að ræða nýja stöðu er er meðal annars fjármögnuð með rekstarstyrk frá Norðurþingi.
Christin er þrítug að aldri og hefur undanfarið ár starfað hjá PriceWaterhouse Coopers en var áður í starfi aðstoðarmanns framkvæmdastjóra hjá PCC Bakki Silicon. Hún er með MS próf í fjölþjóðasamskiptum en lauk þar áður BA prófi í evrópufræðum. Christin er þýsk en hefur verið búsett á Húsavík í nokkur ár samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu.
Húsavíkurstofa hefur í gegnum tíðina unnið ýmis verkefni og var á sínum tíma meðal annars rekstraraðili Mærudaga, upplýsingamiðstöðvarinnar á Húsavík sem og tjaldsvæðisins. Stjórn Húsavíkustofu sagði sig frá öllum rekstri árið 2016 og síðan þá hefur farið fram þarfagreining á verkefnum þeim sem slíkt félag ætti að standa undir.
„Á síðustu árum hefur ferðaþjónusta vaxið gríðarlega sem atvinnugrein á Íslandi og gæði aukist samhliða því. Dvalartími ferðamanna hefur hinsvegar styst og því minni prósenta ferðamanna sem sækir út á land. Samkeppni hefur aldrei verið meiri og hafa ýmis sveitarfélög í samstarfi við ferðaþjónustusamtök blásið til sóknar í áfangastaðamarkaðssetningu. Norðurþing bætist nú í hóp þeirra sveitarfélaga og mun samstarfið við Húsavíkurstofu meðal annars fela í sér samræmingu á upplýsingagjöf til ferðamanna og umsjón með markaðssetningu hafna Norðurþings með tilliti til skemmtiferðaskipa,“ segir í tilkynningu frá Húsavíkurstofu.