Stundvísi í flugsamgöngum milli Íslands og útlanda hefur verið ábótavant síðustu misseri og sérstaklega síðastliðið sumar. Í júní fóru til að mynda rétt um þriðjungur af þotunum í loftið á réttum tíma frá Keflavíkurflugvelli.
Það þarf því ekki að koma á óvart að hvorki Icelandair né WOW air komast á lista greiningafyrirtækisins OAG yfir þau 10 evrópsku flugfélög sem oftast héldu áætlun árið 2018.