Samfélagsmiðlar

Topplisti Tripadvisor staðfestir góðan árangur á landsbyggðinni

Tvö af hótelum Icelandair eru á topp 10 lista Tripadvisor. Þar á bæ ríkir ánægja með valið en líka þá staðreynd að mörg hótel á landsbyggðinni komust á blað.

Canopy hótelið í Reykjavík er efst á Íslandslista Tripadvisor.

„Við hjá Icelandair hótelum erum auðvitað hæstánægð með að eiga tvö hótel á þessum lista. Canopy Reykjavík, sem er í efsta sæti, hefur átt miklum vinsældum að fagna allt frá opnun þess sumarið 2016. Alda hótel bættist síðan við okkar rekstur á nýliðnu ári, en það hefur sömuleiðis notið mikilla vinsælda allt frá því það opnaði vor 2014,“ segir Hildur Ómarsdóttir, markaðs- og þróunarstjóri, Icelandair hótelanna í tilefni af því að Canopy er í efsta sæti á nýjum Íslandslista Tripadvisor yfir bestu hótelin árið 2019. Alda er í fjórða sæti.

Að sögn Hildar vegur staðsetning hótela þungt í einkunnagjöf gesta. „Bæði þessi hótel eruð auðvitað frábærlega vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Viðmót starfsmanna, þægindi og hönnun herbergja, þrif og auðvitað þær veitingar sem í boði eru skipta sömuleiðis lykilmáli þegar kemur að heildarupplifun gests á hverjum stað fyrir sig og endurgjöf. Við leggjum mjög mikla áherslu á gæðaeftirlit okkar hótela, og ekki síst á þjálfun starfsmanna, en hjá Icelandair hótelum starfar mjög sterkt teymi fagfólks við þjálfun og kennslu bæði starfsmanna og nema. Þjálfunarteymið, hótelstjórar og starfsmenn í framlínu eiga mikinn heiður skilinn.“

Á sama tíma og Hildur gleðst yfir árangri hótela Icelandar þá segir hún það sömuleiðis afar ánægjulegt að sjá góðan árangur samkeppnisaðilanna á lista á Tripadvisor. „Sér í lagi landsbyggðarhótelanna sem eru ofarlega á listanum. Mér finnst þetta staðfesta þann árangur sem er að nást í bættum gæðum hótelreksturs hér á landi, og það að landsbyggðin gefur orðið Reykjavík ekkert eftir í gæðum gistingar.“

Að mati Hildar skiptir lykilmáli að sameinast um að efla markaðssetningu þjónustufyrirtækja á landsbyggðinni allt árið um kring svo að þau nái að standa undir rekstrinum sem er enn þungur víða um land yfir vetrartímann. „Það er miklu nær að árétta alla þá frábæru valmöguleika sem í boði eru um allt land, frekar en að setja allan fókus á Reykjavík eingöngu og hótelin hér sem velflest eru í toppnýtingu. Þannig ættum við að fara að horfa til frekari aðgreiningar í markaðssetningu Reykjavíkur og landsbyggðar, og finna til nýjar áherslur við kynningu á borginni, og vísa frekar náttúru unnendum áfram út fyrir bæjarmörkin.“

Horfurnar í ár eru nokkuð góðar að sögn Hildar. „Við sjáum jafna aukningu nýtingar á öllum okkar hótelum þó svo að bókunarglugginn sé stöðugt að styttast yfir vetrartímann.“

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …