Nú er ekki lengur hægt að bóka far með WOW air til Dusseldorf en líkt og Túristi greindi frá um helgina þó voru farmiðarnir félagsins til þýsku borgarinnar komnir upp í 90 þúsund krónur, aðra leið. Svo hátt verð er vanalega undanfari þess að flugleið er felld niður og það var líka raunin í þessu tilviki.
WOW fór jómfrúarferð sína til Dusseldorf í sumarbyrjun árið 2013 og átti þá í samkeppni við tvö stærstu flugfélög Þýskalands, Airberlin og Lufthansa, á þessari flugleið. Síðar tók Eurowings við keflinu frá Lufthansa en gaf flugleiðina upp á bátinn í fyrra. Þá fór Airberlin líka á hausinn og síðastliðið sumar var WOW air því eitt um ferðirnar milli Íslands og Dusseldorf. Farþegum á flugleiðinni fækkaði þá meira en helming eða úr rúmum 23 þúsundum niður í 11 þúsund.
Þó WOW hverfi nú frá Dusseldorf þá detta samgöngurnar héðan til borgarinnar ekki niður því þýska borgin er eini nýi áfangastaður Icelandair í sumar. Félagið fer sína fyrstu ferð í maí en upphaflega stóð til að hefja flugið síðastliðið haust. Ekkert varð hins vegar úr því.