Samfélagsmiðlar

Flugfloti WOW gæti minnkað ennþá meira

Fyrir helgi fór síðasta breiðþota WOW air frá Keflavíkurflugvelli og félagið er þessa dagana að afhenda fjórar þotur til Air Canada. Fleiri flugvélar gætu verið á leiðinni burtu.

Það voru tuttugu þotur í flugflota WOW air sem kynntur var í tengslum við skuldabréfaútgáfu flugfélagsins í haust. Strax í nóvember fækkaði flugvélunum um fjórar þegar tvær breiðþotur og tvær A320 flugvélar fóru til eigenda sinna í Frakklandi. Í flota WOW voru eingöngu fjórar þotur á kaupleigu og þær seldi WOW svo nýverið til Air Canada. Fyrir helgi fór þriðja og síðasta breiðþotan sem flugfélagið hefur haft afnot af.

Eftir standa þá 11 þotur og hefur Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW, gefið út að endurskipulagning flugfélagsins byggi á þeim fjölda flugvéla. Áreiðanlegar heimildir Túrista herma hins vegar að nú sé til skoðunar að fækka þotunum um tvær til þrjár í viðbót. Þessi breyting myndi hafa veruleg áhrif á farþegafjölda WOW air og áformin um rúmlega 2 milljónir farþega í ár gætu þá verið í hættu. WOW flaug til að mynda með 1,6 milljónir farþega árið 2016 þegar þoturnar voru 9 á fyrri helmingi ársins en svo bættust þrjár breiðþotur við á þeim seinni.

Sem fyrr segir hefur Túristi ekki fengið svör frá Skúla Mogensen, við fyrirspurn um þessa meintu fækkun í flugflota félagsins. En líkt kom fram í umfjöllun CNBC í dag, sem íslenskir fjölmiðlar hafa sagt frá í kvöld, þá telur Ben Baldanza, fyrrum stjórnarmaður í WOW air og samstarfsfélagi William Franke, stjórnanda Indigo Partners, að Franke muni gera kröfu um að stjórna flugleiðum og flota WOW air ef hann á endanum fjárfestir í félaginu. Fresturinn sem Indigo Partners hefur til að ganga frá samningi við Skúla rennur út í lok febrúar samkvæmt þeim breytingum sem skuldabréfaeigendur félagsins gáfu samþykki sitt fyrir nýverið.

Þess ber að geta að WOW air gerði í hittifyrra samning um leigu á fjórum splunkunýjum breiðþotum og stóð til að fyrri tvær kæmu hingað til lands í þessum mánuði. Túristi hefur ekki fengið svör frá WOW air né eiganda flugvélanna hvort íslenska flugfélagið sé ennþá skuldbundið til að taka við þotunum. Leiga á einni slíkri gæti numið hátt í 100 milljónum króna á mánuði.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …