Þrátt fyrir aðdráttarafl Rómar þá hafa íslensk flugfélög sýnt borginni lítinn áhuga og Icelandair hefur til að mynda aldrei flogið þangað. WOW spreytti sig á áætlunarferðum þangað tvö sumur en ekki var framhald á. Í vetur hefur hins vegar norska flugfélagið Norwegian boðið upp á tvær ferðir í viku til Rómar en þessi flugleið lenti því miður undir niðurskurðarhnífnum þegar félagið kynnti uppfærða sumaráætlun.
Þar með leggjast þessar samgöngur á milli Reykjavíkur og Rómar af nú í lok mars en þangað til er hægt að finna farmiða, báðar leiðir, á 40 til 60 þúsund krónur. Jafnvel ódýrara eins og sjá má á þegar bókunarvél Norwegian er flett.
Í Róm má svo finna gistingu á sérkjörum þessa dagana. Þriðja nóttin er frí á fína íbúðahótelinu Casacau og 15 prósent afsláttur er í boði á Pepoli9.
Svo má nota þessa leitarvél hér til að finna góð tilboð á gistingu: