Bresk yfirvöld hafa bannað allt flug þota af gerðinni Boeing 737 MAX 8 í lofthelgi sinni. Það var Mbl.is sem greindi fyrst frá og þar segir að í yfirlýsingu breskra flugmálayfirvalda (CAA) komi fram að um tímabundna varúðarráðstöfun sé að ræða þar sem gögn liggi ekki fyrir úr flugritum vélar Ethiopian Airlines, sem hrapaði til jarðar á sunnudag. Gefin hafi verið út fyrirmæli um að engin vél af gerðinni Boeing 737 MAX 8 geti lent, tekið á loft eða flogið innan breskrar lofthelgi.
Þetta bann hefur verulega áhrif á flug Icelandair því félagið hefur nýtt MAX þoturnar umtalsvert í flug til breskra áfangastaða. Þannig fór TF-ICE til London í morgun og átti að fljúga þangað aftur seinnipartinn í dag. TF-ICU flaug bæði til London og Glasgow í gær og þriðja MAX þota Icelandair var í Glasgow í fyrrdag. Áætlun Icelandair gerði ráð fyrir að þessar þotur myndu fljúga áfram til Bretlands næstu daga.
Sumaráætlun Icelandair byggir á því að níu MAX þotur séu í flota félagsins, bæði ef gerðinni MAX 8 og MAX 9. Ljóst er að ef bannið í Bretlandi varir lengi og fleiri lönd fylgja fordæmi Breta þá gengur flugáætlun Icelandair, frá og með vorinu, ólíklega upp eins og staðan er í dag.
Norska flugfélagið Norwegian hefur kyrrsett sínar MAX 8 þotur frá og með deginum í dag en félagið hefur meðal annars nýtt þær í flug til og frá Íslandi. Air Canada flýgur einnig MAX þotum til Íslands frá Toronto og Montreal.