Stuttu eftir að ljóst varð að Icelandair kemur ekki að yfirtöku WOW air þá sendi það síðarnefnda frá sér tilkynningu. Þar kemur fram að meirihluti skuldabréfaeigenda félagsins og aðrir kröfuhafar eigi í viðræðum um að komast að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um málið verða veittar á morgun samkvæmt því sem segir í tölvupósti Skúla Mogensen, forstjóra WOW og eiganda, til starfsmanna.
Í viðtali Morgunblaðsins nú í kvöld, við fulltrúa fjárfesta sem tók þátt í skuldabréfaútboði WOW í haust, kemur fram að skuldabréfaeigendur og kröfuhafar hafi fundað um málið alla helgina. Hugmynd þeirra sé að afskrifa skuldir og bjóða 51 prósent í WOW til kaups. Munu nýir aðilar í eigendahópnum njóta forgangs, meðal annars varðandi sölu bréfa í endurskipulögðu félagi.
Ekki liggur fyrir hvort þessi endurskipulagning á skuldum WOW geri ráð fyrir að ógreidd lendingagjöld félagsins á Keflavíkurflugvelli verði afskrifuð. Auk þess eru vísbendingar um að skuld WOW við Arion banka sé veruleg en um áramótin námu kröfur bankans á flugiðnaðinn fjórum milljörðum króna. Ekki hafa fengist upplýsingar frá Arion hvort þarna séu um að ræða kröfur á hendur WOW air að öllu eða einhverju leyti. Þess má þó geta að Icelandair er ekki í viðskiptum við bankann.