Nú er önnur vertíð Super Break hér á landi langt komin en þessi breska ferðaskrifstofa hefur síðustu vetur boðið upp á Íslandsferðir um Norðurland. Flogið er beint til Akureyrar frá nokkrum breskum borgum yfir veturinn og stoppa gestirnir oftast í þrjár til fjórar nætur.
Þessum ferðum verður haldið áfram á næsta ári samkvæmt tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands. Þar segir að fjórtán ferðir verði settar í sölu til að byrja með frá mikilvægustu héraðsflugvöllunum í Bretlandi. Vonir standa til þess að hægt verði að bæta fleiri við en dagskráin hefst í byrjun febrúar og stendur yfir fram í apríl.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Chris Hagan sem stýrir Íslandsprógrammi Super Break (af Facebooksíðu Markaðsstofu Norðurlands).
Super Break heldur Akureyrarflugi áfram 2020
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Super Break mun halda áfram að fljúga til Akureyrar næsta vetur. Breytingar verða gerðar á skipulaginu og er áætlað að fyrstu ferðirnar verði farnar í byrjun febrúar 2020 og að flogið verði hingað fram í apríl. Chris Hagan, sem hefur yfirumsjón með verkefninu hjá Super Break, segir að 14 ferðir verði settar í sölu til að byrja með frá mikilvægustu héraðsflugvöllunum í Bretlandi. Vonir standa til þess að hægt verði að bæta fleiri ferðum við.
Posted by Markaðsstofa Norðurlands on Miðvikudagur, 27. mars 2019