Heimsferðir hafa samið við Norwegian um flug sitt til Kanaríeyja næsta vetur. Í tilkynningu kemur fram að norska flugfélagið muni staðsetja vél á Íslandi til að sinna flugi fyrir fyrirtækið. „Morgunflug verða í boði til Tenerife og Gran Canaria, en Norwegian flýgur til fjölda áfangastaða fyrir systurfyrirtæki Heimsferða í Danmörku og Svíþjóð,“ segir í tilkynningu.
Í svari til Túrista segir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða að það sé ekki ósennilegt að flugvélin verði notuð í flug til fleiri áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða Boeing 737-800 flugvél með sæti fyrir 186 farþega og hún fljúga til Gran Canaria á þriðjudögum og daginn eftir til Tenerife.