Samfélagsmiðlar

Ísland ódýrara fyrir Svía

Þó sænska krónan hafi lækkað síðustu misseri þá fá sænskir ferðamenn engu að síður meira fyrir peninginn sinn hér á landi en í fyrra.

Það stefnir í að nokkru fleiri Svíar ætli að halda sig heima í sumar því sala á sólarlandaferðum fer hægt af stað. Eru ferðafrömuðir sammála um hitibylgjan, sem gekk yfir Svíþjóð síðastliðið sumar, dragi úr áhuga margra þar í landi á ferðalögum suður á bóginn. Hin veika sænska króna gerir það líka að verkum að í dag er það dýrara fyrir Svía að halda sér uppi á erlendri grundu og þannig ástand dregur alla jafna úr ferðagleðinni.

Sænska krónan hefur til að mynda misst fjórtán prósent af virði sínu gagnvart bandarískum dollara síðastliðið ár og veikingin nemur um fjórum af hundraði í evrum talið. Dæmið lítur hins vegar betur út fyrir Svía þegar kemur að ferðalögum til Brasilíu, Tyrklands, Suður-Afríku, Úkraínu og Íslands samkvæmt samantekt fjármálafyrirtækisins Avanza.Sænska krónan hefur nefnilega styrkst gagnvart gjaldmiðlum þessara landa frá því í fyrra. Þannig er sænska krónan fjórum prósentum verðmeiri á Íslandi í dag en hún var á sama tíma á síðasta ári en eins og gefur að skilja er ekki tekið tillit til verðbólgu í þessum útreikningum.

Fyrstu tvo mánuði ársins fækkaði brottförum Svía frá Keflavíkurflugvelli um tíund og er það í takt við fækkun síðustu tveggja ára. Þrátt fyrir það þá ætlar skandinavíska flugfélagið SAS að bjóða upp á beint flug til Íslands frá Arlanda í Stokkhólmi yfir hásumarið í ár. Og þá í samkeppni við bæði Icelandair og WOW.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …