Lögmaður Isavia orðinn skiptastjóri WOW

Þorsteinn Einarsson hefur verið lögmaður Isavia, meðal annars vegna mála sem tengjast Kaffitári. Hann er nú orðinn bústjóri WOW og gæti þurft að takast á við kyrrsetningu Isavia á einni af leiguflugvélum félagsins.

Mynd: Sigurjón Ragnar

Hæstaréttarlögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson voru skipaðir skiptastjórar þrotabús WOW air í gær. Tveir skiptastjórar voru skip­aðir yfir búinu vegna stærðar þess en um  síðustu mánaðamót námu heildar langtímaskuldir flugfélagsins tæplega 16 milljörðum króna samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins. Þar af má rekja tæpa tvo milljarða til skuldar WOW við Keflavíkurflugvöll.

Það er því útlit fyrir að Isavia verði einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú flugfélagsins og því athyglisvert að Þorsteinn, hinn nýskipaði skiptastjóri WOW, hefur unnið sem lögmaður fyrir Isavia. Hann var hann meðal annars í forsvari fyrir Isavia í málum tengdum Kaffitári og kröfu eigenda þess fyrirtækis að útboðsgögn á verslunarrými verði gerð opinber.

Þorsteinn telur þessi fyrrum störf sín fyrir Isavia ekki skipta máli. „Ég er einn eigenda Forum lögmanna og við höfum ásamt fleiri lögmannsstofum sinnt vinnu fyrir Isavia. Það er engin hætta á hagsmunaárekstrum í störfum mínum sem skiptastjóri WOW air,“ segir Þorsteinn í svari til Túrista.

Stjórnendur Isavia kyrrsettu í gær eina af þeim flugvélum sem WOW air hafði til umráða og er það gert til tryggingar á ógreiddum notendagjöldum WOW á Keflavíkurflugvelli. Sem fyrr segir nema þau um 2 milljörðum króna í dag. Trygging Isavia er því flugvél sem WOW air átti ekki heldur var með á leigu. Deildar meiningar munu vera um þessa heimild Isavia samkvæmt viðmælendum Túrista. Bent er á að eigandi flugvélarinnar, Air Lease Corporation, gæti farið fram á að greiða aðeins notendagjöld sem tengjast flugvélinni sem varkyrrsett en ekki alla skuld WOW við Keflavíkurflugvöll.

Þetta álitamál kemur væntanlega inn á borð skiptastjóra WOW en Þorsteinn segist ekkert geta tjáð sig um þetta ákveðna mál þar sem hann þekki það ekki. Túristi hefur óskað eftir viðbrögðum frá Air Lease Corporation á kyrrsetningu flugvélarinnar og líka þeirri staðreynd að bústjóri WOW hafi verið lögmaður Isavia.