Allt síðasta ár fækkaði farþegum í innanlandsflugi og sú þróun heldur áfram. Því í janúar síðastliðnum fóru 51.264 farþegar um innanlandsflugvellina en þeir voru ríflega 7 þúsund fleiri á sama tíma í fyrra. Hlutfallslega nemur samdrátturinn um 12 prósentum.
Inn í þessum tölum eru allir þeir sem nýttu sér Íslandsflug bresku ferðaskrifstofunnar Super Break til og frá Akureyrarflugvelli. Og samkvæmt tölum frá breskum flugmálayfirvöldum voru þetta um sautján hundruð farþegar í nýliðnum janúar eða álíka margir og á sama tíma í fyrra.
Eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan þá var samdrátturinn í janúar mestur á minni flugvöllum landsins samkvæmt tölum Isavia.