„Mér þykir vænt um fyrirtækið og vildi hag þess sem mestan. Það er sorglegt og leiðinlegt hvernig þetta fór,“ segir Baldur Oddur Baldursson, fyrsti framkvæmdastjóri WOW air, í samtali við Túrista. Baldur Oddur var jafnframt einn af stofnendum WOW air ásamt þeim Matthías Imsland, núverandi varaformanni stjórnar Isavia, og Skúla Mogensen. Skúli var í upphafi stjórnarformaður fyrirtækisins en tók við sem forstjóri í lok sumars 2012.
WOW air hóf sölu farmiða 23. nóvember 2011 og þá var sumaráætlun flugfélagsins kynnt. Af því tilefni voru „10 fyrstu sætin á hvern áfangastað seld á sérstöku kynningarverði, 9.900 kr. með sköttum.“ Síðar lækkaði tilboðsverðið hjá WOW, áfangastöðunum fjölgaði og farþegafjöldinn margfaldaðist.
Þau miklu umsvif hafa haft mikil áhrif á íslenska ferðaþjónustu og eftir tíðindi dagsins segist Baldur Oddur hafa áhyggjur af stöðu greinarinnar. „Þetta er mjög slæmt fyrir íslenskan ferðaþjónustu og hagkerfið allt.“