Samfélagsmiðlar

Tillögur að skilvirkara eftirliti með erlendri og ólöglegri starfsemi

Samtök ferðaþjónustunnar kynntu í dag tillögur á 9 sviðum um aðgerðir til að takmarka erlenda og ólöglega starfsemi í ferðaþjónustu á Íslandi.

Tillögurnar taka á ýmsum sviðum eftirlits níu opinberra stofnana og fjalla meðal annars um mikilvægi þess að komið verði á lögbundum samstarfsvettvangi eftirlitsaðila. Þær byggja á reynslu eftirlitsaðila og félagsmanna samtakanna og miða að því að koma í veg fyrir skakka samkeppnisstöðu á ferðaþjónustumarkaði samkvæmt því sem fram kemjur í frétt á vef samtakana.

„Til mikils er að vinna. Óáreitt brotastarfsemi erlendra fyrirtækja sem fara ekki að lögum og kjarasamningum sem gilda á Íslandi, og stunda í krafti þess stórfelld undirboð í samkeppni við fyrirtæki sem fara að lögum í ferðaþjónustu, veldur því að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja versnar mikið, atvinnuöryggi launþega minnkar og samfélagið verður af miklum tekjum,“ segir í frétt SAF.

Þar er  jafnframt bent á að íslensk ferðaþjónusta er í daglegri samkeppni á Evrópska efnahagssvæðinu sem gerir fyrirtækjum kleift að stunda viðskipti yfir landamæri hindrunarlítið. „Það er mikilvægt að ítreka að Samtök ferðaþjónustunnar amast ekki við eðlilegri samkeppni sem fram fer samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að. Vandamálið er að fjöldi fyrirtækja nýtir sér það frelsi sem felst í viðskiptum yfir landamæri og of máttlítið og óskilvirkt eftirlit á íslenskum ferðaþjónustu- og vinnumarkaði til að stunda óáreitta brotastarfsemi sem skekkir samkeppnisgrundvöllinn.“

Að mati forsvarsfólks Samtaka ferðaþjónustunnar eru það sameiginlegir hagsmunir atvinnurekenda, launþega og hins opinbera að stöðva skattsvik, félagsleg undirboð og aðra starfsemi í ferðaþjónustu sem ekki fylgir lögum, reglum og kjarasamningum. „Árangur í baráttu við brotastarfsemi í ferðaþjónustu leiðir til jafnara samkeppnisumhverfis og betri afkomu ferðaþjónustufyrirtækja, tryggari atvinnu og betri réttinda starfsfólks í ferðaþjónustu og eykur tekjur ríkisins sem nýtast til uppbyggingar samfélagsins.“

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …