Allt árið um kring flýgur Delta Air Lines milli Íslands og New York og á sumrin bætast við reglulegar ferðir til Minneapolis. Áætlunarflug Delta frá Keflavíkurflugvelli er líka góður kostur fyrir þá sem eru á leið héðan til annarra áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada eða jafnvel í Mið- og Suður-Ameríku því leiðakerfi Delta nær mjög víða.
Delta efnir nú til ferðaleiks á síðum Túrista og getur vinningshafinn valið á milli tveggja farmiða með félaginu frá Íslandi til New York eða Minneapolis. Til að eiga kost á þessum glæsilega vinningi þarf að svara eftirfarandi spurningu en aðeins er tekið við einu svari frá hverju netfangi.
[qsm quiz=12]
Mundu að skrá nafn og netfang en allir þeir sem taka þátt fara sjálfkrafa á póstlista Túrista. Dregið verður úr réttum svörum 15. maí og vinninginn þarf að nota innan árs.