Samfélagsmiðlar

Fleiri ferðamenn um borð

Tengifarþegum hjá Icelandair fækkaði í mars á kostnað farþega sem voru á leið hingað í ferðalag. Hlutfall íslenskra farþega jókst sömuleiðis.

Það voru 268 þúsund farþegar sem nýttu sér áætlunarflug Icelandair í nýliðnum mars eða um 8 þúsund fleiri en á sama tíma á síðasta ári. Þá hafði páskatraffíkin jákvæð áhrif á tölurnar að hálfu leyti því páskadagur var þann 1. apríl. Þrátt fyrir fleiri farþega þá var nýtingin í vélum Icelandair ögn lakari. Skýringin er sú að framboð á flugsætum var aukið um sex prósent á meðan farþegahópurinn stækkaði um þrjú prósent samkvæmt nýbirtum flutningatölum Icelandair fyrir mars.

Í þessum mánaðarlegu uppgjörum Icelandair er fjöldi farþega vanalega birtur í einni tölu en að þessu sinni hafa stjórnendur Icelandair ákveðið að sýna hvernig farþegarnir skiptust á milli ferðamanna á leið til Íslands, tengifarþega og svo farþega sem hófu ferðalagið hér á landi. Niðurstaðan er sú að fyrstnefndi hópurinn er stærstur (121 þúsund farþegar) og stækkaði hann um 13 af hundraði frá sama tíma í fyrra. Tengifarþegarnir voru um 105 þúsund og fækkaði þeim um 7 prósent. Vægi farþega frá heimamarkaðnum er hins vegar minnst því þeir voru rétt um 42 þúsund talsins en fjölgaði þó um fjögur prósent.

Ástæða þess að forsvarsfólk Icelandair birtir að þessu sinni dýpri greiningu á farþegahópnum kann að hafa með fall WOW air að gera. Fyrir íslenska ferðaþjónustu og íslenskt efnahagslíf skiptir nefnilega miklu máli að vægi erlendra ferðamanna í þotum Icelandair aukist á kostnað tengifarþeganna sem staldra aðeins stutta stund í Leifsstöð á milli ferða sinni milli Evrópu og Norður-Ameríku.

 

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …