Samfélagsmiðlar

Skekkjan í talningu ferðamanna gæti minnkað og dvalartíminn lengst

Flugáætlun Keflavíkurflugvallar hefur dregist saman og þar með verður Leifsstöð ekki eins góð stoppistöð fyrir farþega á leið yfir Norður-Atlantshafið.

Til Íslands komu rúmlega 2,3 milljónir ferðamanna í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli. Einn af hverjum tíu var þó ranglega meðtalinn því þetta voru annað hvort útlendingar búsettir á Íslandi eða svokallaðir sjálftengifarþegar. Þessi skekkja í talningunni var fyrst könnuð sumarið 2017 í kjölfar greina Túrista um vísbendingar um aukið ofmat á fjölda ferðamanna.

Með brotthvarfi WOW air og fækkun áfangastaða Icelandair vestanhafs stefnir hins vegar í að vinsældir Keflavíkurflugvallar sem skiptistöð, fyrir farþega á leið yfir Norður-Atlantshafið, dragist saman. Nú er nefnilega ekki hægt að tengja saman eins margar flugferðir, tveggja  flugfélaga, til að komast samdægurs milli Norður-Ameríku og Evrópu með millilendingu á Íslandi. Sjálftengifarþegunum ætti því að fækka en þeir hafa verið taldir sem ferðamenn jafnvel þó þeir dvelji ekki hér á landi og sumir farir aldrei út úr Leifsstöð.

Samtals voru sjálftengifarþegarnir um 150 þúsund á öðrum, þriðja og fjórða ársfjórðungi síðasta árs en fjöldinn var ekki kannaður á þeim fyrsta. Ef hann hefur verið álíka og á öðrum og fjórða fjórðungi þá hafa sjálftengifarþegarnir verið á bilinu 170 til 180 þúsund í fyrra. Við þann hóp bætast svo 55 til 65 þúsund útlendingar sem búsettir eru hér á landi en eru ranglega taldir sem ferðamenn. Vægi hópanna tveggja er því um tíu prósent af heildarferðamannafjöldanum líkt og áður segir.

Í máli forsvarsmanna Isavia hefur komið að farþegar Wizz Air hafi töluvert nýtt sér Ameríkuflugið frá Keflavíkurflugvelli en félagið hefur flogið hingað frá fimm pólskum borgum. Þessir farþegar hafa allir þurft að sækja farangur við komuna til Íslands og innrita sig í flug á ný og þar með verið taldir sem ferðamenn á Íslandi. Þetta kann að skýra að hluta að hluta hvers vegna pólskum ferðamönnum hefur fjölgað miklu hraðar en gistinóttum Pólverja hér á landi. Fjöldi þeirra Pólverja sem býr á landinu skýrir einnig þróunina því þeir eru líka taldir sem ferðamenn í Leifsstöð.

Á sama tíma og skekkjan í ferðamannatalningunni gæti dregist saman í kjölfar samdráttar í flugáætlun Keflavíkurflugvallar þá gæti hún einnig orðið til þess að dvalartími ferðamanna lengist. Í fyrra fjölgaði gistinóttum útlendinga um aðeins 1 prósent samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hingað komu þó um 5,5 prósent fleiri ferðamenn og meðaldvalartími þeirra var rétt um 4,5 nætur en var um 5 nætur á hvern ferðamann árið 2016. Í ár gæti hlutfall raunverulegra ferðamanna, þ.e. þeirra sem gista á landinu, því hækkað og dvalartíminn því lengst þegar niðurstöður ferðamannatalningarinnar á Keflavíkurflugvelli eru bornar saman við gistitölur Hagstofunnar. Fleiri þættir hafa þar vissulega áhrif líka eins og aukið vægi evrópskra ferðamanna á kostnað Bandaríkjamanna.

 

 

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …