Höfuðborgarstofa og Ferðamálastofa bjóða í hádeginu í dag til kynningar á niðurstöðum rannsóknar á áhrifum Airbnb á húsnæðismarkaðinn. Kynningin fer fram í Tjarnarsal Ráðhússins og þar mun Dr. Anne-Cécile Mermet, borgarlandfræðingur og lektor við Sorbonne háskóla í París, kynna niðurstöður rannsóknar á áhrifum Airbnb á húsnæðismarkaðinn á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Í tilkynningu segir að verkefnið hafði tvíþætt markmið.
Annars vegar var gerð tölfræðileg úttekt á þróun framboðs og landfræðilegri dreifingu Airbnb á Höfuðborgarsvæðinu á árunum 2016 til 2018 og kannað hversu stórt hlutfall framboðsins hafði tilskilið leyfi. Hins vegar var gerð eigindleg rannsókn á hvaða forsendum leigusalar starfrækja Airbnb á Höfuðborgarsvæðinu, hvaða áhrif starfssemi þeirra hefur haft á húsnæðismarkaðinn og hvaða áhrif það hefur haft í för með sér fyrir heimamenn. Verkefnið var styrkt af Ferðamálastofu og Íbúðalánasjóði.