Kröfu Air Lease Corporation um að þota fyrirtækisins, TF-GPA, sem WOW air hafði á leigu og var kyrrsett af Isavia í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins verður þar áfram. Landsréttur hafnaði í dag beiðni fyrirtækisins um að þotan yrði tekin með beinni aðfarargerð úr vörslu Isavia.
Þotan var kyrrsett vegna rúmlega tveggja milljarða króna skuldar WOW air við Keflavíkurflugvöll. Í dómi Landsréttar segir að ekki sé að finna neinar takmarkanir á umfangi þeirra gjalda sem heimilt væri að þvinga fram greiðslur á með því að aftra för loftfars.
Í yfirlýsingu sem Isavia sendi frá sér eftir að dómurinn var birtur segir að úrskurður Landsréttar staðfesti að fyrirtækinu sé heimilt að kyrrsetja flugvélar vegna heildarskulda eiganda eða umráðanda við flugvelli í rekstri félagsins. „Isavia vill ítreka þá staðreynd að eigandi TF-GPA, leigufélagið ALC, getur lagt fram viðunandi tryggingu fyrir skuldinni og þannig fengið flugvélina afhenta þá þegar og komið henni í rekstur aftur,“ segir í tilkynningu.
Fréttastofa RÚV hefur það eftir Oddi Ástráðssyni, öðrum lögmanna ALC, að næstu skref séu nú til skoðunar. Verið sé að yfirfara úrskurðinn og skoða möguleika á að óska kæruleyfis til Hæstaréttar. Oddur segir að úrskurður Landsréttar koma mjög á óvart og valda miklum vonbrigðum.