Björn Óli Hauksson hætti sem forstjóri Isavia um páskana en hann hafði þá sinnt starfinu í áratug. Í byrjun mánaðar var forstjórastaðan auglýst laus til umsóknar og í gær fresturinn út. Einn þeirra sem orðaður hefur verið við starfið er Matthías Imsland, fyrrum framkvæmdastjóri Iceland Express, meðstofnandi WOW air og núverandi varaformaður stjórnar Isavia. Matthías staðfestir hins vegar í tölvupósti til Túrista að hann hafi ekki sótt um forstjórastöðuna.
Líkt og greint var frá í gær þá verður ekki upplýst um nöfn þeirra sem sóttu um enda var umsækjendum lofaður fullur trúnaður í auglýsingu. Eins mun Isavia ekki bera skylda til að birta þess háttar upplýsingar frekar en öðrum opinberum hlutafélögum.