Samfélagsmiðlar

Unnið að sameiningu rútufyrirtækja

Í sumarbyrjun er stefnt að því að sameina hluta af af starfsemi Hópbíla við Gray Line.

airportexpress

Eigendur ferðaþjónustufyrirtækjanna Gray Line og Hópbíla skoða þessa dagana möguleika á samstarfi samkvæmt heimildum Túrista.  Viðræðurnar munu vera á viðkvæmu stigi en stefnt er að því að klára þær nú í sumarbyrjun þegar háannatími í ferðaþjónustunni hefst. Unnið mun vera út frá því að rekstur Reykjavík Sightseeing, sem eru í eigu Hópbíla, og Gray Line verði sameinaður en rútufyrirtækin tvö eiga til að mynda í harðri samkeppni í sætaferðum til og frá Keflavíkurflugvelli.

Ef af verður mun hið sameinaða fyrirtæki þó ekki verða stærra en Kynnisferðir sem er í dag umsvifamesta rútufyrirtæki landsins og rekur til að mynda Flugrútuna í samkeppni við Hópbíla/Reykjavik Sightseeing og Gray Line. Í kjölfar útboðs Isavia á rútustæðunum fyrir framan Flugstöð Leifs Eiríkssonar þá þurfa Kynnisferðir og Reykjavík Sightseeing samanlagt að greiða Isavia að lágmarki rúmar 300 milljónir á ári fyrir einkanot á bílastæðunum.

Þegar útboðið fór fram, sumarið 2017, voru rekstrarerfiðleikar WOW ekki opinberir en flugfélagið var þó komið í vanskil við Isavia stuttu síðar samkvæmt því sem nú er komið fram. Hvað sem því líður og þeirri staðreynd að nú fækkar erlendu ferðafólki eftir fall WOW þá eru Kynnisferðir og Hópbílar skuldbundin til að greiða Isavia fyrrnefnda lágmarksleigu. Gray Line nýtir hins vegar bílastæði aðeins fjær flugstöðinni fyrir sínar sætaferðir. Gjaldtaka Keflavíkurflugvallar á því svæði er hins vegar umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu eftir kæru Gray Line.

Kynnisferðir, Gray Line og Hópbílar eru öll að stórum hlut í eigu fjárfestingasjóða sem tengjast viðskiptabönkunum þremur. Þannig fjárfestu Íslandssjóðir, sem eru í eigu Íslandsbanka, í 49 prósent hlut í Gray Line árið 2015 og ári síðar keypti framtakssjóður á vegum Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans, allt hlutafé Hópbíla. Fjárfestingasjóður á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, hefur farið með 35 prósent hlut í Kynnisferðum í nærri fjögur ár.

Túristi hefur óskað eftir viðbrögðum við sameiningaráformunum frá stjórnendum Gray Line og Hópbíla en ekki fengið.

Nýtt efni

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …