Fiskidagurinn mikli á Dalvík og Arctic Adventures undirrituðu nýverið samning um að ferðaþjónustfyrirtækið verði einn af aðalstyrktaraðilum fjölskylduhátíðarinnar sem haldin er í bæjarfélaginu ár hvert. Af þessu tilefni var kynnt sérstak átak í hreinsun á fjörum við utanverðan Eyjafjörð í tengslum við hátíðina. Arctic Adventures mun útvega báta og búnað til að fara upp í fjörur og hreinsa þar til en áformað er að hreinsunin fari fram fimmtudaginn 8. ágúst samkvæmt því sem segir í tilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram að ruslið og það sem finnst við strendurnar mun verða til sýnis á laugardeginum eða sjálfum Fiskideginum mikla til að vekja fólk til umhugsunar og til að sýna hvað það er sem finnst í fjörutiltekt. „Mikil vakning hefur orðið fyrir mikilvægi þess að hreinsa hafið og strandlengjur landsins. Við utanverðan Eyjafjörð eru margar fjörur illfærar og þar mun verkefnið að mestu fara fram. Fiskidagurinn Mikli og Arctic Adventures munu síðar auglýsa eftir fólki til að taka þátt.“
Í tilkynningu er haft eftir Júlíusi Júlíussyni, frá Fiskideginum mikla, að hann sé himinlifandi yfir að fá Arctic Adventures inn í hóp aðalstyrktaraðila hátíðarinnar. Fyrirtækið sé með sterka umhverfisvitund sem sé í takt við aukna áherslur aðstandenda hátíðarinnar á umhverfismál.
„Við erum mjög stolt af að verða einn aðalstyrktaraðili fjölskylduhátíðarinnar Fiskidagsins mikla nú á 10 ára afmæli hvalaskoðunar Arctic Adventures á Dalvík. Það hefur verið mikil vitundarvakning í hreinsun hafsins og strandlengju Íslands og við viljum leggja okkar að mörkum og nýta bátakost okkar til að fara á þau svæði sem erfitt er að hreinsa” segir Freyr Antonsson hjá Arctic Adventures. Nýverið greindi fyrirtækið frá því að það hefði skuldbundið sig til að kolefnisjafna nærri helming af útblæstri fyrirtækisins í fyrra með því að gróðursetja um 10 þúsund tré.