Samfélagsmiðlar

Jón Karl tekur við af Andra Má

Fyrrum forstjóri Primera Air hefur tekið við stjórnartaumunum í Travelco Nordic

Jón Karl Ólafsson er nýr stjórnarformaður Travelco Nordic.

Starfsmönnum Travelco Nordic var tilkynnt í morgun að Arion banki hefði tekið yfir rekstur Travelco Nordic, móðurfélag ferðaskrifstofuveldis Andra Más Ingólfssonar. Jón Karl Ólafsson, fyrrum forstjóri Primera Air og Icelandair, er nýr stjórnarformaður Travelco Nordic.

Ætlun Arion banka er að selja fyrirtækin eins hratt og auðið er samkvæmt því sem segir í tilkynningu. Aðspurður um hversu langan tíma það gæti tekið þá segir Jón Karl, í samtali við Túrista, að erfitt sé að segja til um það en búast megi við sex til tólf mánaða söluferli. „Ef það þarf lengri tíma þá verður það að vera svo,“ segir Jón Karl.

Íslensku ferðaskrifstofurnar Heimsferðir og Terra Nova tilheyra Travelco Nordic og í fyrrnefndi tilkynningu segir að rekstur þessara tveggja fyrirtækja gangi vel. Jón Karl segir rekstur á hinum Norðurlöndunum að koma til. Þar hafi miklar breytingar verið gerðar og fyrirtækin í spennandi stöðu.

Jón Karl lét af störfum hjá Primera Air árið 2014 en nokkru síðar var rekstri flugfélagsins umbylt og fókusinn fór frá leiguflugi yfir í áætlunarflug. Sú breyting gekk hins vegar ekki upp og félagið fór í þrot síðastliðinn október. Í framhaldinu færði Andri Már Ingólfsson rekstur ferðaskrifstofa Primera Travel Group yfir í danskt dótturfélag. Það félag hefur Arion banki nú tekið yfir en bankinn tapaði um þremur milljörðum á falli Primera Air.

Samkvæmt heimasíðu Travelco Nordic þá gerir fyrirtækið ráð fyrir að fljúga með um 300 þúsund viðskiptavini til útlanda í frí á þessu ári. Um helmingurinn leggur í hann frá dönskum flugvöllum.

 

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …