Samfélagsmiðlar

Ráðinn forstjóri Isavia

Sveinbjörn Indriðason sem verið hefur annar af starfandi forstjórum Isavia verður eftirmaður Björns Óla Haukssonar. Umsækjendur um starfið voru tuttugu og sex talsins.

Sveinbjörn Indriðason er nýr forstjóri Isavia.

Stjórn Isavia hefur ráðið Sveinbjörn Indriðason í starf forstjóra Isavia og tekur hann strax við starfinu, sem hann hefur gegnt undanfarna mánuði ásamt Elínu Árnadóttur aðstoðarforstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

„Sveinbjörn hefur á síðustu mánuðum sýnt mikla leiðtogahæfileika sem starfandi forstjóri Isavia. Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á fyrirtækinu – og hefur um leið slegið nýjan tón. Það eru fjölmargar áskoranir framundan og mikilvægt að stýrt sé af festu og ábyrgð. Við treystum Sveinbirni afar vel til þeirra verka. Um leið viljum við þakka þeim fjölmörgu hæfu umsækjendum sem sóttu um starfið og þann áhuga sem þeir sýndu,“  segir Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia, í tilkynningu.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ segir Sveinbjörn. „Starfið er mjög spennandi og framundan margvísleg verkefni. Hjá Isavia starfar margt hæfileikaríkt og gott starfsfólk sem ég hlakka til að vinna með áfram. Isavia er mikilvægt fyrirtæki fyrir íslenskt samfélag og brýnt að reksturinn sé stöðugur til framtíðar.“

Björn Óli Hauksson sem gegndi stöðu forstjóra Isavia í nærri áratug lét af störfum fyrir páska og skömmu áður hafði Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Isavia til fimma ára, líka látið gott heita.

Nýtt efni

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …