Það er löng hefð fyrir vetrarfríum Íslendinga á Flórídaskaganum en í vetur verður framboð á flugi þangað minna en síðustu ár. Á tímabili var flogið héðan allan veturinn til þriggja borga í Flórída en núna er beint flug til Orlandó eini valkosturinn. Þangað munu þotur Icelandair fljúga nánast daglega í vetur en þeir farþegar sem ætla að taka bíl á leigu við flugvöll borgarinnar mega búast við að borga meira en þeir sem voru á ferðinni í fyrra.
Þetta sýnir samanburður á athugunum Túrista sem gerðar voru í dag og í byrjun september í fyrra. Megin skýringin á þessari verðþróun er sú að bandaríski dollarinn hefur styrkst um nærri fimmtung undanfarið ár í samanburði við íslensku krónuna. Sem fyrr er leitarvél bókunarfyrirtækis Rentalcars nýtt í verðsamanburðinn en hún finnur oft hagstæðari tilboð en þau bílaleigurnar sjálfar bjóða.