Þotur WOW air fóru 962 áætlunarferðir frá Keflavíkurflugvelli í júní í fyrra og stóð félagið þá fyrir um þriðju hverju brottför frá flugvellinum. Þetta stóra skarð sem WOW air skilur eftir sig hefur aðeins að litlu leyti verið fyllt og því fækkaði áætlunarferðunum í nýliðnum júní um fjórðung samkvæmt talningum Túrista.
Helsta ástæðan fyrir því að samdrátturinn reyndist minni en sem nemur vægi WOW air í fyrra er sú að ferðafjöldinn hjá Icelandair jókst um nærri fimmtung í júní. Eins fjölgaði ferðum Wizz Air um tuttugu en þetta ungverska lággjaldaflugfélag er orðið næst umsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli eins og sjá má hér að neðan.
Nýbirtar tölur Ferðamálastofu sýna að erlendum ferðamönnum á landinu í júní fækkað um 17,6 prósent. Í maí var hlutfallslegur munur á fjölda flugferða og ferðamanna hins vegar minni en í júní. Það er vísbending um að vægi erlendra ferðamanna í flugvélunum sem flugu til og frá landinu í júní hafi verið hærra en í maí.