Þegar umsvif WOW air voru mest þá stóð félagið fyrir þriðju hverri flugferð frá Keflavíkurflugvelli, var með ríflega þúsund manns í vinnu og var skilgreint sem kerfislega mikilvægt fyrirtæki. Innan stjórnarráðsins var starfandi sérstakur hópur sem undirbúa átti viðbrögð ef rekstur flugfélagsins færi úr skorðum.
WOW fór svo í þrot í lok mars og lögmennirnir Þorsteinn Einarsson og Sveinn Andri Sveinsson voru skipaðir yfir þrotabúið. Skipun þeirra var nokkuð umdeild en líkt og Túristi greindi frá hafði Þorsteinn verið í forsvari fyrir Isavia í stórum málum.
Sem fyrr segir fara þeir félagar núna fyrir þrotabúi fyrirtækis sem var metið þjóðhagslega mikilvægt og stefnir í að kröfurnar munu nema tugum milljarða króna. WOW skuldaði Isavia rúma tvo milljarða, Umhverfisstofnun hefur lagt 3,8 milljarða króna stjórnvaldssekt á búið og Flugfreyjur krefjast milljarðar svo fáein dæmi séu nefnd.
WOW air átti þó engar flugvélar né fasteignir og helstu verðmætin því ekki eins ekki auðseljanleg. Þann 10. júlí hafði Vísir það hins vegar eftir Sveini Andra Sveinssyni að ónefndur aðili hefði keypt það „verðmætasta úr þrotabúinu“ án þess þó að tilgreina sérstaklega um hvað eignir væri að ræða. Tveimur dögum síðar sagði Fréttablaðið frá því að amerískir fjárfestar hefðu fest kaup á vörumerki, bókunarvél og flugrekstrarbókum WOW og staðfesti Sveinn Andri í fréttinni að uppsett kaupverð hefði verið greitt en vildi ekki tjá sig frekar.
Allar götur síðan hefur Túristi og líklega fjöldi annarra fjölmiðla reynt að fá skýrari svör frá Sveini Andra um málið og sérstaklega eftir frétt viðskiptakálfs Moggans í síðustu viku um að kaupverðið hefði í raun ekki verið greitt. Sveinn Andri svarar þó engu og það hafa heldur engin svör fengist frá Þorsteini.
Hann tjáir sig hins vegar við Mbl.is í dag og staðfestir að kaupum Michele Ballarin og amerískra fjárfesta á eignum WOW hafi verið rift. Af frétt Mbl að dæma þá hefur Þorsteinn ekki verið spurður um fyrri fullyrðingar Sveins Andra um að kaupverðið hafi verið greitt. Þar með liggur það ekki fyrir á þessari stundu hvort það hafi einhvern tíma verið greitt fyrir „verðmætustu“ eignir WOW líkt og Sveinn Andri hafði staðfest.
Mbl.is hefur það jafnframt eftir Þorsteini að fleiri hafa sýnt eignum úr þrotabúi WOW áhuga og tiltekur sérstaklega varahluti í Airbus þotur. Hann segir ekkert um sölu á vörumerkinu og bókunarvélinni. Og frá Sveini Andra heyrist ekki orð ef frá er talið stutt viðtal við hann í Fréttablaðinu fyrir helgi um færslu sem hann hafði sett inn á Facebook um óskylt efni.
Á meðan Þorsteinn heldur áfram að skammta Mogganum stutt svör og Sveinn Andri gerir slíkt hið sama við Fréttablaðið þá stefnir í að það komist seint upp á yfirborðið hvað þeir félagar hafa selt, fyrir hvaða upphæð, á hvaða forsendum og hvaða samningum hefur nú verið rift. Kröfuhafar WOW air munu skiljanlega vera farnir að ókyrrast.