Samfélagsmiðlar

11 þúsund krónur fyrir sætið í einu jómfrúarferð vetrarins

Þann sextánda september hefst á ný beint flug milli Íslands og Kraká í Póllandi. Engin önnur borg bætist við leiðakerfi Keflavíkurflugvallar í vetur.

Frá Kraká.

Síðustu misseri hefur þeim fækkað nokkuð áfangastöðunum sem flogið er til frá Keflavíkurflugvelli enda munaði ekki lítið um WOW air. Í ofan á lag þá hætti Icelandair við flug til Halifax og Cleveland í sumar og nú hefur Portland í Oregon fylki verið tekin út af vetrarprógrammi flugfélagsins. Eina viðbótin sem er í kortunum í vetur er því áætlunarflug Wizz Air til Kraká í austurhluta Póllands. Sú borg var reyndar lengi fastur liður í sumaráætlun Iceland Express.

Fyrsta ferð Wizz Air til Kraká verður farin frá Keflavíkurflugvelli mánudaginn 16. september og eins og staðan er núna þá kostar sæti í flugið ekki nema rétt um 11 þúsund krónur (80 evrur). Verðið er það sama ef farið er út á föstudeginum og flugmiðarnir heim kosta álíka mikið.

Af fargjöldum í október að dæma þá er eftirspurn eftir þessu nýja beina flugi Wizz Air milli Íslands og Kraká ekki sérstaklega mikil. Þannig er töluvert af brottförum í október og nóvember á undir sjö þúsund krónur og sú ódýrasta er frá Póllandi þann 29. nóvember því þá kostar flugsætið aðeins rétt um 2 þúsund krónur.

Nýtt efni

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …