Samfélagsmiðlar

128 þúsund færri farþegar milli Íslands og Bretlands

Á fyrri helmingi ársins fækkaði þeim verulega sem nýttu sér flugsamgöngurnar hingað frá Bretlandseyjum.

Frá Gatwick í London.

Gatwick flugvöllur við Lundúnir hefur verið helsta samgöngumiðstöðin fyrir Íslandsflug síðustu ár. Nú hefur flugferðunum þaðan til Keflavíkurflugvallar fækkað verulega og á fyrri helmingi ársins flugu 87 þúsund færri farþegar milli Gatwick og Keflavíkurflugvallar en á sama tíma í fyrra. Þá hafði Gatwick mikið forskot á aðra flugvelli þegar kom að farþegaflugi til Íslands eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Nú er Heathrow á ný orðin sú breska flugstöð sem flestir nýta til að fljúga til Íslands. Þaðan flugu samtals 175 þúsund farþegar á fyrstu sex mánuðum ársins en rétt um 150 þúsund frá Gatwick. Hafa ber í huga að stór hluti þeirra sem nýta sér ferðir Icelandair frá Bretlandi eru farþegar sem aðeins millilenda hér á landi á leið sinni milli Bretlands og Norður-Ameríku.

Allt frá stofnun þá flugu þotur WOW air til Gatwick og þó flugfélagið hefði komist í gegnum síðasta vetur þá var samdrátturinn á Gatwick fyrirsjáanlegur. WOW air hafði nefnilega selt afgreiðslutíma sína á þeim flugvelli og ætlaði að færa Lundúnarflugið yfir á Stansted. WOW air hafði líka skorið niður flug frá Edinborg en þaðan hefur farþegum í ár fækkað um helming sem gæti opnað dyr fyrir Icelandair í borginni.

Til viðbótar við fall WOW air þá hafa bæði easyJet og British Airways skorið niður eða boðað færri flugferðir milli Íslands og Bretlands. Á sama tíma hættu stjórnendur Wizz Air við að fljúga hingað daglega frá Luton í vetur og láta í staðinn fimm ferðir í viku duga. En Luton flugvöllur er engu að síður í mikilli sókn þegar kemur að Íslandsflugi því þaðan komu 42 prósent fleiri farþegar til landsins á fyrri hluta ársins en á sama tíma í fyrra samkvæmt upplýsingum frá breskum flugmálayfirvöldum. Isavia neitar að birta álíka upplýsingar og kærði Túristi þá afstöðu stjórnenda þess til úrskurðarnefndar upplýsingamála í maí 2018. Niðurstaða liggur ekki fyrir í málinu.

Nýtt efni

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …

MYND: ÓJ

Kínverskir ferðamenn hafa verið töluvert áberandi í Reykjavík og víðar um land í vor. Auðvitað er fólk af kínverskum uppruna búsett um allan heim og eitthvað af því fer í Íslandsferðir en þeim hefur snarfjölgað sem koma hingað alla leið frá Alþýðulýðveldinu Kína. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli komu hingað í marsmánuði 8.642 Kínverjar og …