Afkoma flugfélagsins SAS á síðasta fjórðungi var jákvæð um nærri einn og hálfan milljarð sænskra króna. Það jafngildir um 19,2 milljörðum íslenskra króna. Á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn um fjórðungi hærri og skrifa stjórnendur flugfélagsins samdráttinn á hærra olíuverð, flugmannaverkfall og svo hefur veikt gengi sænsku krónunnar slæm áhrif en SAS gerir upp í þeirri mynt. Þetta er meðal þess sem kom fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í morgun í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja fjórðung ársins. Honum lauk í lok júlí þar sem reikningsárið hjá SAS nær frá 1. nóvember til loka október.
Þriðji fjórðungur ársins nær þar með yfir maí til júlí og er því arðbærasti hluti ársins því þá eru flestir á ferðinni. Rickard Gustafson, forstjóri SAS, vildi í samtölum við fjölmiðla í morgun þó ekki gefa neitt út um hvort félagið yrði rekið með hagnaði í ár, sagði aðeins að það væri áskorun að enda árið réttum megin við núllið.
Og forstjórinn boðar áframhaldandi aðhald í rekstri þar sem einingakostnaður hefði ekki lækkað í takt við áætlanir. Þannig á að breyta framkvæmdastjórn félagsins með það fyrir augum að skerpa á ábyrgð og flýta nauðsynlegum umbreytingum í rekstrinum eins og það er kallað í kynningu. Í yfirstjórn SAS eiga sæti sex framkvæmdastjórar auk forstjórans en til samanburðar þá eru framkvæmdastjórarnir átta talsins hjá Icelandair.